Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir hátíðinni „Bíladagar á Akureyri” dagana 13. - 17. júní. Bílaklúbburinn hefur staðið fyrir bílasýningu á þjóðhátíðardaginn óslitið frá árinu 1974 og efnt til sérstakra bíladaga síðustu árin en þeir hafa notið mikilla vinsælda meðal áhugamanna um mótorsport.
Á þriðja hundruð bifreiða tekur þátt í hátíðinni í ár.