Búast má við töfum á umferð upp Ártúnsbrekkuna í Reykjavík fram eftir degi þar sem átján hjóla trukkur með aftanívagn fór þar á hliðina í hádeginu. Af verksummerkjum að dæma virðist sem bílnum hafi verið ekið á mikilli ferð af aðrein af Reykjanesbraut inn á Vesturlandsveg.
Bílstjórinn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl. Það mun taka nokkurn tíma að koma bílnum á réttan kjöl. Segir lögreglan að búast megi við miklum umferðartöfum af þessum sökum fram undir klukkan 16 í dag.