Ráðherra heimsækir Grænland

Tengslin styrkt milli Íslands og Grænlands.
Tengslin styrkt milli Íslands og Grænlands. mbl.is/Ómar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kom á hádegi í dag til Nuuk á Grænlandi til að eiga viðræður við grænlensku heimastjórnina um aukin viðskipti landanna.

Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu eru nánari tengsl byggða á Vestfjörðum og Norð-vesturlandi við Grænland sérstakt áherslumál í ferðinni.

Einnig verður lögð áhersla á samstarf á sviði ferðaþjónustu, málefni norðurslóða, öryggismál, loftslagsbreytingar og vísinda- og menningarsamskipti.

Í tilkynningunni segir: „Þá verður utanríkisráðherra Íslands sérstakur gestur hátíðahalda á morgun 21. júní í tilefni þjóðhátíðardags Grænlendinga í boði Alequ Hammon sem fer með fjármál og alþjóðamál í heimastjórn Grænlands.  

Með utanríkisráðherra í för eru bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, ferðamálastjóri og fulltrúar Háskólans á Hólum og háskólasetursins á Ísafirði.  
 
Samstarf Íslands og Grænlands nær nú einkum til samgangna, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála, heilbrigðisþjónustu og umhverfisverndar. Ríkur gagnkvæmur áhugi er á að færa samvinnu til fleiri sviða og dýpka þá sem fyrir er."


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert