Helgi Ólafsson stórmeistari sigraði á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík nú um helgina. Helgi tapaði ekki skák og hlaut 8 vinninga af 9 mögulegum.
Björn Þorfinnsson var í öðru sæti með 7 vinninga og í 3.-5. sæti urðu Arnar E. Gunnarsson, Simon Bekker-Jensen og Henrik Danielsen með 6,5 vinning.
Mótið var haldið í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík. Keppendur voru 53 og komu úr öllum áttum, börn og byrjendur, stórmeistarar og stórbændur.
Veitt voru verðlaun í fjölmörgum flokkum og varð Einar K. Einarsson efstur skákmanna með minna en 2200 stig. Björn Torfason bóndi á Melum varð efstur í 2 flokkum, heimamanna og stigalausra skákmanna. 1.
Svanberg Pálsson var efstur barna á grunnuskólaaldri, annar var Nökkvi Sverrisson og þriðja Emma Kamilla Finnbogadóttir.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varð efst kvenna. Hún gaf verðlaunafé sitt í söfnun til styrktar Guðmundi Þorsteinssyni á Finnbogastöðum, sem missti hús sitt í stórbruna í byrjun vikunnar. Aðrir verðlaunahafar gáfu líka í söfnunina.
Heiðursgestur mótsins var grænlenski pilturinn Paulus Napatoq. Hann er 16 ára, hefur verið blindur frá fæðingu og býr í afskekktasta þorpi Grænlands. Hann tefldi 5 skákir á mótinu í Djúpavík og fékk 3,5 vinning. Á morgun, sunnudag, verður hraðskákmót í Kaffi Norðurfirði, nýju kaffihúsi Árneshrepps sem opnaði á þjóðhátíðardaginn. Mótið hefst kl. 12 og er öllum opið.
1. Helgi Ólafsson, 8 vinningar
2. Björn Þorfinnsson, 7 vinninga
3-5. Arnar Gunnarsson, Simon Bekker-Jensen, Henrik Danielsen, 6,5 vinning
6-8. Espen Lund, Guðmundur Kjartansson, Einar K. Einarsson 6 vinninga
9-11. Magnús Gíslason, Hrannar Jónsson, Svanberg Már Pálsson 5,5 vinning