Engin sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg

Varðskip Landhelgisgæslunnar
Varðskip Landhelgisgæslunnar


Ekkert hefur sést til svokallaðra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg, en það eru skip ríkja sem ekki eiga aðild að fiskveiðiráði og veiða í leyfisleysi á yfirráðasvæði þess. Ráðstafanir fiskveiðistjórnunarráða gagnvart þeim líta út fyrir að hafa skilað tilætluðum árangri en Landhelgisgæslan hefur, eins og undanfarin ár, stundað eftirlit með karfaveiðum á Reykjaneshrygg, bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands.

Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðið (NEAFC) sem stjórnar veiðum á svæðinu hefur hert reglur um veiðarnar bæði hvað varðar aflamagn, veiðisvæði og tímabil veiðanna á mismunandi svæðum. Litið er á það sem alvarlegt brot ef upplýsingar um veiðar skipa aðildarríkja eru ekki aðgengilegar í gagnagrunni fiskveiðráðsins og er þá veiðileyfi viðkomandi skips ekki í gildi, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Á undanförnum vikum hefur Landhelgisgæslan sent fjölda tilkynninga til aðildarríkja fiskveiðiráðsins þar sem gerðar eru athugasemdir vegna skorts á upplýsingum m.a. tilkynningar um aflamagn þegar komið er inn á veiðisvæði, vikulegar aflaupplýsingar og tilkynningar um umskipun úti á hafi. Nokkrar aðildarþjóðir hafa komið þessum málum í lag í kjölfarið en aðrar ekki.

„Veiðar á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins, bæði á úthafinu og innan lögsögu, án gilds veiðileyfis eru ólöglegar og samkvæmt íslenskum lögum er bannað að þjónusta skip sem hafa gerst sek um brot á reglum fiskveiðiráðsins. Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt öllum aðildarríkjum ráðsins að skip þeirra sem uppfylla ekki skilyrði veiðanna sé óheimilt að koma í íslenskar hafnir. Landhelgisgæslan hefur því synjað nokkrum skipum aðildarríkjanna um leyfi til hafnarkomu á Íslandi."


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert