Yfirvinnubann boðað

Hjúkrunarfræðingar hafa boðað yfirvinnubann
Hjúkrunarfræðingar hafa boðað yfirvinnubann

Enginn árangur náðist á fundi samninganefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefndar ríkisins hjá ríkissáttarsemjara í dag. Af þeim sökum hefur Fíh boðað til yfirvinnubanns hjúkrunarfræðinga frá kl. 16 fimmtudaginn 10. júlí nk. Frá þeim tíma munu hjúkrunarfræðingar aðeins skila vinnuskyldu sinni í samræmi við umsamið starfshlutfall.

Annar fundur hefur verið boðaður næstkomandi mánudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert