Akstur tveggja ökumanna var stöðvaður í höfuðborginni í gær vegna gruns um ölvun. Um var að ræða tvo karlmenn sem báðir eru á sextugsaldri. Þeir voru réttindalausir.
Lögreglan stöðvaði einnig för tvítugs pilts á Miklubraut síðdegis en sá var einnig undir stýri þrátt fyrir að vera próflaus. Piltur á svipuðum aldri var tekinn við akstur á Kringlumýrarbraut í nótt en hann var undir áhrifum fíkniefna. Sá hefur aldrei náð sér í ökuréttindi, en var þrátt fyrir það tekinn undir stýri í annað skiptið.