Engan sakaði í umferðarslysi sem varð á Vesturlandsvegi um kvöldmatarleytið. Umferð út úr bænum gengur afar hægt en að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ætti hún að komast í eðlilegt horf á næstu mínútum.
Litlar upplýsingar var að fá um slysið að svo stöddu, aðrar en að bíll hafi oltið á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir.