Vopnaður maður handtekinn í Grímsey

mbl.is/Júlíus

Maður var handtekinn í Grímsey í kvöld en hann hafði hótað fólki með hnífi og barefli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri. Fóru sérsveitarmenn sem eru staðsettir á Akureyri út í eyju og handtóku manninn sem var undir áhrifum áfengis. Gistir hann nú fangageymslu lögreglunnar á Akureyri en hann er góðkunningi lögreglunnar. Maðurinn var gestkomandi í Grímsey en þar stendur yfir sjóstangaveiðimót.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert