Geir H. Haarde heimsótti embætti ríkislögreglustjóra

Lögregluvefurinn

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, heimsótti embætti ríkislögreglustjóra í dag.  Á fréttavef Lögreglunnar kemur fram að stjórnendur ríkislögreglustjóraembættisins áttu fund með ráðherra, ráðuneytisstjóra og aðstoðarmanni og fóru yfir helstu verkefni lögreglunnar í nútíð og framtíð.

Ráðherra heimsótti deildir embættisins, spjallaði við starfsmenn og kynnti sér starfsemina.  Í höfuðstöðvum embættisins að Skúlagötu 21 kynnti ráðherra sér alþjóðadeild, greiningardeild, efnahagsbrotadeild, sérsveit og stjórnsýslusvið. Að því loknu fór forsætisráðherrann í heimsókn í Skógarhlíð 14, þar sem hann kynnti sér starfsemi embættisins sem þar er til húsa, samhæfingarstöð, almannavarnir og fjarskiptamiðstöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert