Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga hefur sent Ríkisútvarpinu og Páli Magnússyni,útvarpsstjóra opið bréf þar sem það mótmælir harðlega uppsögnum og tilheyrandi samdrætti í starfsemi svæðisstöð Ríkisútvarpsins ohf á Ísafirði.
Bréfið ferð í heild sinni hér á eftir:
„Ríkisútvarpið ohf
Páll Magnússon, Útvarpsstjóri
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga mótmælir harðlega uppsögnum og tilheyrandi samdrætti í starfsemi svæðisstöð Ríkisútvarpsins ohf á Ísafirði, sem tilkynntar voru að hálfu yfirstjórnar Ríkisútvarpsins ohf, í gær 30. júní. Hlutverk svæðisútvarps fyrir Vestfirði er mikilvægur þáttur í tengingu samfélaga á Vestfjörðum og er einnig hluti af öryggisviðbúnaði. Í annan stað er hlutverk svæðisútvarpsins að gæta þess að þjóðfélagsumræða á Íslandi byggi á skoðunum allra íbúa landsins. Gildir þá ekki síst að fréttamat þeirra sem um svæðin fjalla, búi þar og séu hluti af samfélaginu. Hér gildir hið sama um höfuðborgarsvæði sem önnur landssvæði.
Fjórðungssamband Vestfirðinga
Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri"