„Ég er arkitekt og hef rekið stofu um árabil og reikna með því að fara í þau störf aftur. Ég verð áfram í skipulagsráði um óákveðinn tíma, vegna stuðnings við mig og vegna óska formanns ráðsins,“ segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fráfarandi aðstoðarmaður borgarstjóra, en 24 stundir töluðu við hana í gær þegar ein mínúta var eftir af starfstíma hennar. „Við vorum að vissu leyti ósammála um nálgun á viðfangsefninu.“