Nýverið voru stofnuð Samtökin almannaheill sem er samstarfsvettvangur félaga og sjálfseignarstofnana sem vinna að almannaheill á Íslandi. Samtökunum er ætlað að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir almannaheillasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í almannaþágu, skapa þessum aðilum hagfellt starfsumhverfi, styrkja ímynd þeirra og efla stöðu þeirra í samfélaginu.
Ennfremur að vera málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum og samfélaginu, stuðla að umræðu og þrýsta á aðgerðir stjórnvalda í málefnum þeirra, að því er segir í tilkynningu.
Sambærileg heildarsamtök tíðkast í flestum nágrannalanda okkar og hafa starfað þar um langt árabil með góðum árangri.
Sérstök áhersla verður lögð á þrjú verkefni: Að vinna að einföldu og bættu skattaumhverfi til samræmis við stöðu slíkra félaga í nágrannalöndunum. Að stuðla að skýrari réttarstöðu og traustara rekstrarumhverfi með því að sett verði heildarlög um starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana, réttindi þeirra og skyldur. Að skýra fyrir opinberum aðilum og samfélaginu hlutverk almannaheillasamtaka og sjálfseignarstofnana og beina sjónum að gagnsemi þeirra fyrir íslenskt samfélag.
Eftirfarandi samtök gerðust stofnfélagar á fundinum: Aðstandendafélag aldraðra, Blindrafélagið, Bandalag íslenskra skáta, Geðhjálp, Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs, Heimili og skóli-Landssamtök foreldra, Hjálparstofnun kirkjunnar, Krabbameinsfélag Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Landvernd, Neytendasamtökin, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Ungmennafélag Íslands, Öryrkjabandalag Íslands.
Formaður samtakanna er Guðrún Agnarsdóttir, varaformaður Björn B. Jónsson, gjaldkeri Kristinn Halldór Einarsson og ritari Jónas Guðmundsson en meðstjórnendur Björgólfur Thorsteinsson, Eva Þengilsdóttir og Jónas Þórir Þórisson. Í varastjórn eru Björk Einisdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Júlíus Aðalsteinsson, Kristín Jónasdóttir, Stefán Halldórsson, Sveinn Magnússon og Vilmundur Gíslason.