Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar sjöunda mánuðinn í röð. Í þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að fylgi ríkisstjórnarinnar mældist tæplega 80% í upphafi kjörtímabilsins en hefur minnkað jafnt og þétt það sem af er ári. Fylgi mælist nú 52% en var í maí um 55%. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna hefur hins vegar fallið úr um 70% í 63%.
Í kvöldfréttum Rúv kom fram að fylgi flokkanna breytist lítið miðað við síðasta Þjóðarpúls Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn er með 33% fylgi og Samfylkingin með 30%. Framsóknarflokkurinn mælist nú með 9% fylgi og stuðningur við Frjálslynda flokkinn mælist 4%. Stuðningur við Vinstri græna mælist nú 20%.
Könnun Gallup var gerð á tímabilinu 28. maí til 30. júní. Spurt var hvort fólk væri sátt við viðbrögð Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar við versnandi efnahagsástandi. 68% sögðust óánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar og 70% eru ánægðir með aðgerðir ríkisstjórnarinnar.