Varað við hvassviðri í kvöld og nótt

Almannavarnir vara við hvassviðri í kvöld og nótt og fram á morgundag.

Nú er töluvert hvasst um sunnanvert  landið.  Mjög hvassar hviður eru sunnanundir Vatnajökli, einkum undir Öræfajökli.   Við Sandfell í Öræfum hafa hviður farið yfir 40 m/s.  Einnig eru hvassar hviður undir Eyjafjöllum. Búast má við að hvassviðrið  standi fram á kvöld á suðaustanverðu landinu og fram á nótt á Suðurlandi og á miðhálendinu.

Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspá

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert