Menntaráð Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í dag að ráða Þórunni Kristinsdóttur skólastjóra í Hvassaleitisskóla. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri í sama skóla í rúman áratug. Fimm umsækjendur voru um stöðuna.
Þórunn er einn þriggja nýráðinna stjórnenda í grunnskólum borgarinnar, en hinir eru Björn Magnús Björgvinsson skólastjóri í Laugalækjarskóla og Guðlaug Erla Gunnarsdóttir skólastjóri í Ingunnarskóla.
Nýir stjórnendur hafa verið ráðnir við leikskólana Klambra, Ösp, Heiðarborg og
Holtaborg. Hanna Halldórsdóttir tekur við stjórnartaumum í leikskólanum Klömbrum
af Ingibjörgu Kristleifsdóttur og Fanný Heimisdóttir tekur við stjórninni í
leikskólanum Ösp í stað Svanhildar Hákonardóttur. Þá hefur Arndís Árnadóttir
tekið við starfi leikskólastjóra í Heiðarborg og Guðný Hallgrímsdóttir hefur verið
ráðin leikskólastjóri í Holtaborg.