Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar áverka eftir árekstur tveggja bíla á Drottningarbraut við Suðurbrú á Akureyri klukkan 21:37 í gærkvöldi. Annar bílstjóranna brást reiður við árekstrinum og stökk út úr bíl sínum og ógnaði hinum bílstjóranum með hnífi.
Hann hafði þó lagt frá sé hnífinn og róast nokkuð er lögregla kom á vettvang. Grunur er um að maðurinn hafi aðeins bragðað áfengi en ekki var þó talin ástæða til að gera á honum blóðrannsókn.
Málið verður sent áfram til sýslumanns þar sem ákveðið verður hvort brugðist verður með einhverjum hætti við upphlaupi mannsins.