Fleiri fangar elda sjálfir

Sífellt fleiri fangar elda nú sjálfir mat sinn á Litla …
Sífellt fleiri fangar elda nú sjálfir mat sinn á Litla Hrauni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fangar eru nú farnir að elda sjálfir í þremur deildum fangelsisins Litla Hrauns eftir að ein slík deild bættist við í fyrradag.

Stefnt er að því að fjórða deildin bætist við í haust. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá þessu.

Fangelsismálastofnun hefur á undanförnum árum unnið að því að fangar læri grunnatriði í til dæmis eldamennsku, innkaupum og þrifum. Tilgangurinn er að kenna þeim lífsleikni og að vinna saman.

 Fréttavefur Suðurlands.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert