Tveir karlmenn hlupu út á flugbrautina við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum óskuðu öryggisverðir eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja mennina. Atvikið átti sér stað á áttunda tímanum í morgun.
Að sögn Eyjólfs Ágústs Kristjánssonar, fulltrúa lögreglu- og tollstjóra á Suðurnesjum voru mennirnir handteknir og verða þeir yfirheyrðir í dag. „Við lítum á svona hegðun mjög alvarlegum augum, og kann refsing að varða allt að sex ára fangelsi," segir Eyjólfur.
Eyjólfur vill ekki fullyrða neitt um í hvaða tilgangi mennirnir voru þarna en segir að það muni skýrast við skýrslutökur síðar í dag.
Staðhæft er á ýmsum bloggsíðum að mennirnir hafi verið að mótmæla brottför Keníamannsins Paul Ramses, sem fluttur var nauðugur frá landinu í morgun.