Deildarstjóri hjá Fangelsismálastofnun segir að það sé lögreglu og
dómara að meta hvort dæmdir ofbeldismenn skuli vistaðir í
gæsluvarðhaldi á meðan þeir íhuga áfrýjun. Maður sem beið afplánunar
vegna hnífstungumáls tók þátt í hópslagsmálum á Akureyri og gekk
berserksgang í Grímsey vopnaður hnífi og hamri. Fréttastofa Ríkisútvarpsins skýrir frá þessu.
Liðlega tvítugur karlmaður hlaut tuttugu mánaða dóm í byrjun júní fyrir ýmis brot, meðal annars þrjár sérstaklega hættulegar líkamsárásir með hnífi. Maðurinn gekk laus á meðan fjögurra vikna lögbundinn áfrýjunarfrestur rann út, en hann tók þátt í hópslagsmálum á Akureyri fyrir síðustu helgi, þar sem meðal annars var barist með borðfótum, kylfum og öxi.