Aukinn viðbúnaður vegna írskra daga

Sjúkraflutningamenn á Akranesi
Sjúkraflutningamenn á Akranesi Af vef SHA

Sjúkraflutningar á Akranesi hafa aukið viðbúnað sinn vegna írskra daga sem verða haldnir á Akranesi um helgina. Fimm sjúkraflutningamenn verða á vakt alla helgina. Um helgina verður notað vel búið vélhjól sem á að tryggja enn skjótari viðbrögð en ella við slysum, að því er segir á vef Sjúkrahússins á Akranesi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert