Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s á landinu í dag. Skýjað verður austantil á landinu og dálítil rigning eða súld með köflum um hádegi en annars bjart veður. Síðdegis þykknar upp um landið vestanvert og í kvöld verður dálítil væta.
Á morgun verður hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjart veður. Hiti verður 10 til 22 stig, svalast með austurströndinni en hlýjast vestanlands.