Ók á 148 km hraða á Reykjanesbrautinni

Reykjanesbraut
Reykjanesbraut

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á Reykjanesbrautinni sem reyndist vera á 148 km/klst þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst. Einn ökumaður var stöðvaður í Reykjanesbæ grunaður um fíkniefnaakstur.

Lögreglan var við eftirlit á Vallarheiði er hún stöðvaði ökumann lítillar rútubifreiðar. Ásamt ökumanni voru í rútunni sjö farþegar og reyndist engin af þeim vera í öryggisbelti. Voru þeir allir kærðir fyrir það. Þess má geta að ökumaður rútunnar var sá eini sem notaði bílbeltið. Farþegarnir greiddu sektina sektina á vettvangi og lofuðu að vera spenntir næst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert