Eiríkur Tómasson, lagaprófessor hefur óskað eftir því við Morgunblaðið að grein sem hann ritaði í afmælisrit Úlfljóts árið 2007, „Sitt er hvað, sönnunarbyrði og sönnunarmat", verði birt í heild á mbl.is. Í Morgunblaðinu í dag og 24 stundum er fjallað um grein Jóns Steinars Gunnlaugssonar, dómara við Hæstarétt Íslands, í nýjasta tölublaði Tímarits Lögréttu, þar sem hann svarar grein Eiríks.