Sáttafundi ljósmæðra og samninganefndar ríkisins lauk fyrir skömmu án árangurs. Að sögn Guðlaugar Einarsdóttur formanns Ljósmæðra félags Íslands var ekki skrifað undir samninga í dag og næsti fundur er ekki boðaður fyrr en 6. ágúst.
Í tilkynningu frá félaginu hefur áður komið fram að
menntunarkröfur til ljósmæðra eru 6 ára háskólamenntun sem lýkur með
embættisprófi á meistarastigi. Í dag standa ljósmæður frammi fyrir því
að þiggja lægri laun í þjónustu ríkisins en allar aðrar
háskólamenntaðar stéttir með sambærilega menntun. Ljósmæður sætta sig
því ekki við að vera mismunað á þennan hátt af hálfu vinnuveitandans.
Undanfarnar vikur hafa borist fregnir af uppsögnum í stéttinni og mun ástandið vera einna verst á Ísafirði þar sem þrjár starfandi ljósmæður hafa allar sagt upp. Á Akranesi og á Suðurnesjum hafa tugir ljósmæðra sagt starfi sínu lausu sem og í höfuðborginni.