MEST hefur sagt upp 100 á árinu

MEST í Norðlingaholti
MEST í Norðlingaholti mbl.is/Friðrik Tryggvason

Byggingarvörufyrirtækið MEST er komið í verulegan lausafjárvanda og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun koma í ljós á næstu vikum hvort fyrirtækið fær það fé sem nauðsynlegt er til að halda rekstrinum áfram.

Hjalti Már Bjarnason, forstjóri MEST, sá ástæðu til að senda starfsmönnum fyrirtækisins bréf þar sem varað var við erfiðri stöðu. Starfsmönnum hefur þegar fækkað um 100 það sem af er árinu, eða um þriðjung en þeir voru um 300 í upphafi árs. Í bréfi forstjórans kom m.a. fram að kostnaðarlækkanir og eignasala hefðu ekki dugað til, auk þess sem hvorki hefði tekist að afla nægs hlutafjár né lánsfjár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert