Aflaverðmætið 80 milljarðar króna

mbl.is

Afli íslenskra skipa var tæp 1.396 þúsund tonn á síðasta ári, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006. Aflaverðmæti var rúmir 80 milljarðar króna og jókst um 5,4% frá fyrra ári. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, enda er stórum hluta uppsjávaraflans landað þar. Aflakaupendur á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu keyptu mestan afla, að andvirði um 14,5 milljarða hvor. Þeta kemur fram í riti Hagstofu Íslands, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007.

Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2007 var stærsti hluti botnfiskaflans  unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 40%. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert