Einar Þorvaldur Eyjólfsson, formaður knattspyrnudeildar Skallagríms, vill koma á framfæri leiðréttingu á framsögn Neytendasamtakana á æfingagjöldum knattspyrnufélaga. Þar er kemur fram að dýrast á landinu er að æfa hjá Skallagrími eða 50.400 kr. á ári.
Segir Einar þetta alfarið rangt. Sú aðferðarfræði sem notuð hefur verið við útreikning í þessari könnun er röng þ.e. sumargjaldið sem er 4.200 kr. hefur verið margfaldað með 12 mán. 4.200x12= 50.400 kr.
Hið rétta er að sumargjaldið er 4.200 og er bara rukkað fyrir 3 mán.
4.200 kr. x 3 = 12.600 kr. Vetrargjald. 2.400 kr x 8 = 19.200 kr.
Ekkert er rukkað fyrir sept. þar sem æfingar liggja niðri. Samtals árgjald 31.800 kr.