Boðið verður upp á strandveiði í Viðey í sumar þar sem gestum býðst að leigja allan búnað til veiðanna og spreyta sig. Á sunnudag verður haldin fyrsta strandveiðikeppnin af þremur þar sem meðlimir Strandveiðiklúbssins og RB búðarinnar kenna réttu handtökin.
Glæsilegir vinningar verða veittir í ýmsum flokkum. Keppnin byrjar kl 14 og stendur til 17. Viðeyjarstofa er opin frá 11:30 til 17 fyrir þá sem vilja njóta léttra veitinga í fallegu umhverfi.