Tvöfalda þarf Hvalfjarðargöng á næstu 5 til 10 árum

Tíu ár eru liðin í dag frá því að Hvalfjarðargöng …
Tíu ár eru liðin í dag frá því að Hvalfjarðargöng voru opnuð fyrir umferð almennings. mbl.is/Árni Sæberg

Tíu ár eru í dag liðin frá því að Hvalfjarðargöngin voru tekin í notkun. Við þau tímamót afhentu forráðamenn Spalar samgönguráðherra skýrslu um rannsóknir og tæknilega undirbúningsvinnu vegna nýrra ganga sem stjórnin telur að hefja þurfi framkvæmdir við innan fjögurra ára, að því segir í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu.

Kristján L. Möller samgönguráðherra þakkaði forráðamönnum Spalar fyrir forgöngu þeirra og þrautseigju við að vinna verkinu brautargengi svo og fyrir skýrsluna um undirbúning nýrra ganga. Hann sagði eðlilegt að huga að nýjum göngum til að mæta aukinni umferð í framtíðinni, um það væri ekki spurning. Verkið yrði umfangsmikið og undirbúningur tæki langan tíma. Hann sagði göngin ekki komin í samgönguáætlun ennþá en sagðist telja ljóst að ráðast yrði í tvöföldun á næstu 5 til 10 árum.

Samgönguráðherra sagði í ávarpi sínu í afmælisathöfn á Akranesi í dag að Hvalfjarðargöng hefðu fyrir löngu sannað ágæti sitt. Þau styttu þúsundum manna leið á degi hverjum, hefðu leitt til nýrrar þróunar í búsetu og atvinnusókn þau væru dæmi um hvernig samgöngumannvirki gætu skipt sköpum um slíka byggðaþróun.

Kostnaður við ný göng um 7,5 milljarðar

Samkvæmt skýrslu Spalar er áætlaður kostnaður við ný Hvalfjarðargöng um 7,5 milljarðar króna að virðisaukaskatti meðtöldum á verðlagi um mánaðarmótin maí/júní 2008. Þá er reiknað með öllum verkkostnaði og tilheyrandi búnaði ganganna ásamt  vegskálum og vegtengingum beggja vegna auk kostnaðar við hönnun, umsjón og eftirlit. Fjármagnskostnaður er ekki meðtalinn og heldur ekki kostnaður vegna landakaupa.

Fram kemur í tilkynningunni að ætla megi að um þrjú og hálft ár líði frá því vinna hefjist við hönnun nýrra ganga til útboðs þar til göngin verða tekin í gagnið. Áður en næsta skref verði stigið þurfi annars vegar að ljúka landakaupum og hins vegar skipulagsferli beggja vegna Hvalfjarðar. Landakaupin eru á forræði Vegagerðarinnar. Þá er unnið að nýju aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar og breytingum á aðalskipulagi á Kjalarnesi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka