Fauk af bifhjóli undir Hafnarfjalli

Ökumaður bifhjóls úlnliðsbrotnaði þegar öflug vindhviða feykti honum af hjólinu þar sem hann ók undir Hafnarfjalli um kl. 13:30 í dag. Að sögn lögreglu hefur verið mjög hvasst á svæðinu í dag.

Lögreglan mætti síðar hópi bifhjólamanna sem sögðust ætla að bíða af sér veðrið, en þeir treystu sér ekki til að aka um svæðið vegna hvassvirðis.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert