Nokkuð líf glæddist á fasteignamarkaði í vikunni. Stimpilgjöld voru enda afnumin á veðskuldabréfum til fyrstu kaupa hinn 1. júlí. Heildarfjöldi kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu frá 4. júlí til og með 10. júlí var 82.
Til samanburðar var heildarfjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu frá 13. júní til og með 19. júní 33.
Þá námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs samtals tæplega fimm milljörðum króna í júnímánuði. Heildarútlán jukust því um 4% frá fyrri mánuði.