Hátíðahöld á landinu um verslunarmannahelgina í ár verða með svipuðu sniði og í fyrra.
Áberandi er að skipuleggjendur sækjast eftir að skapa fjölskylduvænt umhverfi og alls staðar er einhvers konar dagskrá í boði fyrir börnin í fjölskyldunni.
Töluverður munur er á verði aðgöngumiða eftir hátíðum. Sums staðar er seldur aðgangur að öllum viðburðum og plássi á tjaldstæði í einum pakka en annars staðar er selt inn á staka viðburði og inn á tjaldstæði.