Drukkinn leigubílstjóri á Keflavíkurflugvelli

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar (úr myndasafni)
Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar (úr myndasafni) mbl.is/Helgi Bjarnason

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í morgun afskipti af leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli sem grunaður var um ölvun við akstur. Höfðu vitni við flugstöðina fundið áfengislykt af manninum og hringt í lögregluna.

Að sögn lögreglunnar var leigubílstjórinn ekki staðinn að akstri en hann viðurkenndi sjálfur að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Mældist hann talsvert yfir eðlilegum mörkum en niðurstaðna úr blóð- og þvagprufum er að vænta á næstu 2-3 vikum.

Sagðist leigubílstjórinn, sem býr í Reykjavík, hafa fengið sér nokkra bjóra í gærkvöldi, farið seint að sofa og vaknað snemma í því skyni að keyra upp í flugstöð til að taka á móti farþegum. Hann hafði ekki ekið með farþega í bílnum þegar lögreglan náði af honum tali.

Lögreglumenn fluttu leigubílstjórann á lögreglustöðina þar sem hann viðurkenndi áfengisdrykkju og akstur undir áhrifum. Þar voru einnig sýni tekin, eins og fyrr segir. Síðar í dag, þegar runnið er af honum, mun leigubílstjórinn geta náð í bíllyklana sína á lögreglustöðina en að yfirheyrslum loknum tók hann leigubíl heim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert