Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, munu á föstudag eiga með sér fund um þörf fyrir aukna löggæslu í miðborginni um helgar.
Í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra segir, að fundurinn sé haldinn að frumkvæði Ólafs í framhaldi af mikilli manneklu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar tvær helgar. Samkvæmt upplýsingum frá lögregluembættinu hafi aðeins níu lögregluþjónar á vakt í miðborginni aðfaranótt 6. júlí sl. Tólf lögregluþjónar voru á vakt aðfaranótt 12. júlí og fjórtán aðfaranótt 13. júlí.
Borgaryfirvöld hafa gripið til þess ráðs að fá svokallaða miðborgarþjóna til að standa vakt í miðborginni að næturlagi um helgar. Miðborgarþjónarnir eru sex saman á vakt frá klukkan tvö á nóttunni til átta á morgnana. Í byrjun var um að ræða þriggja vikna tilraunaverkefni. Nýlega samþykkti borgarráð að framlengja verkefnið til 15. september nk.
Borgarstjóri hefur haldið reglubundna fundi með helstu embættismönnum borgarinnar er tengjast miðborginni, fulltrúum veitingahúsaeigenda, lögreglu, íbúum og miðborgarþjónum undanfarna mánudagsmorgna. Skrifstofa borgarstjóra segir, að á fundunum hafi ítrekað verið vakin athygli á þörf fyrir aukna löggæslu í miðborginni.