14 sóttu um starf forstjóra LSH

Alls sóttu fjórtán einstaklingar um starf forstjóra Landspítalans, átta konur og sex karlar. Nýr forstjóri spítalans tekur til starfa 1. september 2008. Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra Landspítalans rann út í fyrrakvöld. Þau sem sóttu um eru:

Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Landspítala.

Anna Linda Bjarnadóttir, sjálfstætt starfandi lögmaður.

Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítala.

Stefán E. Matthíasson, læknir, sjálfstætt starfandi sérfræðingur.

Eydís K. Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri Landspítala.

Guðmundur Björnsson, læknir, meðeigandi og stjórnarformaður Janus-endurhæfingar.

Helgi Þorkell Kristjánsson, aðstoðardeildarstjóri innkaupadeildar Icelandair Tech. Services.

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-háskólasjúkrahússins í Ósló.

Kristján Oddsson, yfirlæknir stjórnsýslusviðs landlæknisembættisins.

María Heimisdóttir, sviðsstjóri Landspítala.

Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga-, slysa- og bráðasviðs Landspítala.

Ragnheiður Haraldsdóttir, sviðsstjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Sjöfn Kristjánsdóttir, læknir, sjálfstætt starfandi sérfræðingur.

Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri Landspítala.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert