Fyrirtækið Perlukafarinn, sem hefur umboð fyrir rafmagnsbílinn Reva, býður þeim sem kaupa slíkan bíl á næstu mánuðum ókeypis rafmagn á bílinn í eitt ár.
Segir félagið, að þeir sem kaupi slíkan bíl frá og með 17. júlí og út septembermánuð fái áætlaðan rafmagnskostnað fyrir heilt ár lagðan inn á reikning sinn hjá viðkomandi orkufyrirtæki.
Reva er framleiddur í Bangalore á Indlandi. Verð á slíkum bílum er frá tæpum 2 milljónum króna til rúmlega 2,4 milljóna samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Perlukafarans.