Skógarkerfill hefur á undanförnum árum breiðst út með ógnar hraða í Eyjafjarðarsveit. Þetta er mjög harðgerð planta og öflug og virðist þola öll venjuleg íllgresiseyðingarlyf sem notuð hafa verið gegn arfa, njóla og öðru algengu illgresi. Á sumum jörðum vex plantan í stórum breiðum og sækir inn í tún svo að til vandræða horfir.
Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar ákvað í vetur að við svo búið mætti ekki lengur standa og hratt því af stað tilraunaverkefni um að reyna með öllum tiltækum ráðum að vinna bug á þessari hvimleiðu jurt.
Grettir Hjörleifsson hefur haft yfir umsjón með verkefninu og hefur að hans sögn náðst allnokkur árangur á undanförnum vikum. Úðað er með Roundup gjöreyðingarlyfi sem drepur allann gróður og því er ekki hægt að beita því á ræktað land. Þar er eina ráðið að plægja upp svörðinn og sá í hann að nýju til að vinna bug á kerflinum.
Eyjafjarðarsveit hefur lagt til starfsmann og tækjabúnað ásamt eitri til verkefnisins en viðkomandi landeigandi leggur á móti til vinnu við úðunina.