Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ítrekað uppi líflátshótanir og hótanir um líkamsmeiðingar í garð tveggja lögreglumanna, sem voru við skyldustörf á Ísafirði í febrúar í vetur.
Sagði maðurinn m.a. að þetta væri síðasta vakt lögreglumannanna og þeir væru búnir að vera, þeir væru báðir dauðir og yrðu báðir drepnir.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi. Í dómnum segir að fyrir liggi að eftir að maðurinn var látinn laus úr haldi lögreglu hafðist hann ekkert að til að fylgja eftir hótunum sínum gagnvart lögreglumönnunum tveimur.