Skutu fugla sér til skemmtunar

Þrír menn um tvítugt voru handteknir af lögreglunni á Höfn, grunaðir um að skjóta fugla sér til skemmtunar. Að minnsta kosti tólf fuglar lágu í valnum er iðja mannanna var stöðvuð, mest megnis fýlar.

Lögreglan á Höfn fékk tilkynningu á þriðja tímanum í nótt um að verið væri að hleypa af við mynni hafnarinnar. Fór lögreglan á staðinn og kom að þremur ungum mönnum sem voru að skemmta sér við að skjóta niður fugla.

Til verknaðarins notuðu þeir tvær haglabyssur sem lögreglan lagði hald á og voru þær ekki skráðar á mennina.

Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert