Nokkuð þung umferð er út úr bænum í augnablikinu og virðist straumurinn liggja jafnt í báðar áttir. Umferðin gengur vel fyrir sig og ekki hefur borið á hraðakstri.
Umferðin austur fyrir fjall gengur hægt og biður lögreglan fólk að sýna þolinmæði. Umferðardeild lögrelunnar á höfuðborgarsvæðinu er með hjól á ferðinni milli borgarinnar og Selfoss en þar tekur lögreglan á Hvolsvelli við. Spáð er góðu veðri um helgina og margir í sumarfríi og því upplagt að leggja land undir fót