Hjólreiðamaður slasaðist í Vatnsfirði um hálftólf leytið í dag. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði voru björgunarsveit og sjúkralið frá Patreksfirði kölluð út til þess að aðstoða við að flytja manninn. Talið er að maðurinn hafi fótbrotnað en hann hefur verið fluttur á slysadeild í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.