Mannbjörg á Breiðafirði

Mannbjörg varð í gærkvöldi þegar Garpur SH, 12 tonna stálbátur frá Grundarfirði, strandaði á Flikruskeri rétt suðvestur af Reykhólum. Landhelgisgæslunni barst neyðarkall kl. 21.26. Þrír menn voru um borð. Þegar fjaraði tók bátnum að halla mikið og fór áhöfnin þá í björgunarbát.

Fljótlega kom lögregla á báti frá Skarðsströnd og tók mennina um borð. Hergilsey frá Reykhólum og fleiri bátar komu á vettvang og tókst þeim að ná Garpi lítið skemmdum af skerinu. Leki var ekki sjáanlegur, að sögn LHG, og átti að draga bátinn til Reykhóla. Gott veður var á slysstaðnum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert