Skemmdir voru unnar í síðustu viku á golfvellinum á Strönd sem er mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Að sögn lögreglu var golfbílum ekið um völlinn og spólað á grasinu. Einnig var golfbílunum ekið á ljósastaura og klúbbhúsið og við þetta skemmdust golfbílarnir.
Lögreglan segir, að fimm drengir á aldrinum 14 til 17 ára hafi viðurkennt skemmdarverkin. Þeir verða spurðir út í málavexti en einn þeirra er ekki sakhæfur.
Einnig voru skemmdarverk unnin í Vík í Mýrdal aðfaranót sunnudags. Þar var steypubíll ræstur og ekið á annan við Klakk, sem er gegnt tjaldstæðinu í Vík. Lyftari var einnig gangsettur og honum ekið að fjöruborðinu, að reiðvegi sem þarna er og þar festist hann í sandkanti. Rúður voru brotnar í bíl við verkstæði skammt frá.
Lögreglan segir, að mikið af fólki hafi verið þarna á tjaldstæðinu og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um þá sem þarna hafa verið að verki beðnir um að snúa sér til lögreglunnar á Hvolsvelli.