Um þrjátíu einstaklingar á vegum samtakanna Saving Iceland fóru inn í höfuðstöðvar Landsvirkjunar við Háaleitisbraut í morgun og trufluðu þar vinnu. Mótmælendur og lögregla eru enn á staðnum en útkall vegna aðgerðanna barst lögreglu klukkan 9:13.
Fram kemur í yfirlýsingu samtakanna að þetta hafi verið gert til að mótmæla virkjunaráformum fyrirtækisins í Þjórsá og samstarfi þess við Alcoa.