Vinnuslys varð í Kárahnjúkavirkjun í gær þegar maður féll niður þrjá metra.
Að sögn Óskars Bjartmarz, yfirlögregluþjóns á Seyðisfirði, var maðurinn að vinna við vegg inni í göngum í Hraunaveitu á Eyjabökkum þegar hann féll niður af lyftara.
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl inn á Neskaupstað. Að sögn Óskars voru meiðsli mannsins minni en á horfðist, og er hann óbrotinn.