Keyrði út af til að forðast árekstur

Ökumaður vespunnar sem ók út af við Víkurskarð austan Akureyrar sl. föstudag var að reyna að forðast árekstur við bifreið sem kom á móti. Ástæða slyssins var því ekki sú að hann hefði einfaldlega misst stjórn á hjólinu eins og sagði í blaðsinu á laugardag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var bifreiðin að taka fram úr annarri bifreið og því á öfugum vegarhelmingi. Ökumaður vespunnar sá ekki aðra leið færa til að afstýra árekstri en að sveigja frá.

Lögregla veit skráningarnúmar bílsins sem olli slysinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert