Sjö milljónir fyrir þakmálun

Akraneshöllin.
Akraneshöllin. Mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Það kostar sjö milljónir að láta mála þak Akraneshallarinnar. Hæsta tilboðið í verkið nam tæpum 22 milljónum.

Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að ganga til samninga við HH verktaka um að mála þak Akraneshallarinnar en tilboð fyrirtækisins í verkið nam rúmum 6,9 milljónum króna. Það er fréttavefurinn Skessuhorn sem greinir frá þessu.

Alls bárust sjö tilboð í verkið.  Hæsta tilboðið átti Færni ehf og hljóðaði það tilboð upp á 21,6 milljónir króna.

Vefur Skessuhorns.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert