„Sveitarfélög munu mörg hver væntanlega þurfa að endurskipuleggja framkvæmdaáætlanir sínar fyrir þetta ár. Hann segir áhrif niðursveiflunnar í efnahagslífinu á starfsemi sveitarfélaga ekki enn komin í ljós.
Aðspurður segir Halldór skuldastöðu sveitarfélaganna rjúka upp. „Kostnaður sveitarfélaganna sem eru með erlend lán hefur aukist mikið. Það færist til gjalda í árslok ef þessi hækkun heldur áfram. Við vonum auðvitað bara að þetta jafni sig út á næstu árum.“ Hann bætir jafnframt við að aðstaðan sé mjög mismunandi enda hafi sum sveitarfélög engin erlend lán á bakinu en allt að því helmingur lána annarra sveitarfélaga sé erlendur.
Halldór telur einnig að erfiðleikarnir byrji á höfuðborgarsvæðinu. „Öll fyrirtækin sem hafa verið í mikilli þenslu og útrás eru á höfuðborgarsvæðinu og því eðlilegt að erfiðleikarnir hefjist þar. Landsbyggðin hefur setið dálítið eftir í þeim efnum og þar af leiðandi finnur hún seinna fyrir erfiðleikunum.“