Bloggið á mbl.is hefur nú verið opnað að hluta, en hægt er að lesa textann í bloggfærslum sem stendur og sumar myndir birtast. Bilun varð í gærkvöldi í diskastæðu, en á þeirri stæðu, sem er röð tölvudiska, eru geymdar myndir bloggara og ýmsar stillingar varðandi útlit bloggs þeirra.
Sem stendur er unnið að því að koma diskastæðunni í gagnið að nýju, en ekki er vitað til þess að nein gögn hafi glatast. Myndir og frekari stillingar munu væntanlega detta inn eftir því sem viðgerð miðar áfram.